Bara eitthvað um mig

  • Nafn: Sigurjón Kristinn Björgvinsson
  • Netfang: S_Kristinn@hotmail.com
  • Staður: Reyðarfjörður/Reykjavík
  • Heimilisfang: Réttarholt 1-3
  • Símanúmer: 8448449
  • Atvinna: Planki ehf.
  • Hjúskaparstaða: Á lausu
  • Um mig: jahh það er allt um mig í "um mig" í undisíðum þannig að tjekk itt át

Auglýsing

Afmæli

Innskráningar kubbur

Leit

Langar mig að hlægja !?

sdf

10. apríl 2008 klukkan 20:52
[URL=http://img229.imageshack.us/my.php?image=lgdragondrivevolume01rf6.jpg][IMG]http://img229.imageshack.us/img229/5462/lgdragondrivevolume01rf6.th.jpg[/IMG][/URL]
Sigurjón Kristinn Björgvinsson

Að koma mánaðamót

24. febrúar 2008 klukkan 19:43

Shit, Mars að fara að ganga í garð


Mér finnst eins og það ætti bara að vera desember eða eitthvað.. en það er svosem ágætt að þetta líði svona hratt, þá verður maður tvítugur fyrr :P eða þannig hehe..


Svo er það bara suður um 18. - ?? mars...man ekki allveg hvaða dag ég fer aftur austur, en ég er allavegana að fara á Cascada með Jóni B. og Ríkey... það verður eitthvað sérstakt held ég :P ég og Jón eitthvað blindfullir og vitlausirað reyna að skemmta okkur eitthvað, held að það eigi eftir að vera eitthvað skemmtilegt :P


En já hef ekkert meira að segja,


Later ^^

Sigurjón Kristinn Björgvinsson

Blogg, eftir margra ára skeið (kannksi ekki allveg samt)

19. febrúar 2008 klukkan 12:47

Ég ætla að byrja á því að byðja ykkur um að drulla ekki yfir mig þegar þið kommentið hvað það er langt síðan að ég bloggaði, svona gerist bara :P

En já það sem hefur skeð svona eftir að ég kom austur

...hmmm...

Dekka hverja einustu helgi bæði föstudag og laugardag.

Kominn með Vinnu í Kjötkaup, rosalega gaman

Kynntist 4 nýjum manneskjum... Ríkey, Jónu Særúni, Magga og Magnúsi

Blogga betur seinna... Þarf að skella mér aftur í vinnuna... bendi samt öllum sem lesa þetta að lesa gamla færslu þegar ég segji ykkur frá góðum sögum úr Englandi ^^

Adios Amigos

Sigurjón Kristinn Björgvinsson

hehehe þetta er svo asnalegt :P

30. desember 2007 klukkan 20:07
Sigurjón Kristinn Björgvinsson

lalalalallalalalalalalalalalalala :D

26. nóvember 2007 klukkan 01:05

já þannig er það að loks er ég genginn inn í 19 árið og er ekki sáttur með það >_<


Hafiði tekið eftir því hvernig þessu er skipt upp...


  • 14 ára : Lögríða

  • 15 ára : Mátt taka skellinöðrupróf

  • 16 ára : Mátt byrja taka bílprófið

  • 17 ára : Færð bílprófið

  • 18 ára : Mátt kaupa þér sígarettur

  • 19 ára : ...

  • 20 ára : Mátt fara í Ríkið


ahverju er ekki neitt sett þarna inn á milli bara svona uppá funnið eða fært úr 20 árunum niðrí 19 árin... þetta er asnalegt finnst mér... kannksi útaf því að ég er 19 og það bæstist ekkert við það sem ég má gera :S...


En já Vika eftir af venjulegum skóladegi, og heim eftir 3 vikur ca. :D get ekki beðið eftir að fara austur...


Og já fyrir þá sem vita það kannksi ekki þá er ég að fara að taka mér pásu í skólanum í eina önn og verð fyrir austan á meðan :) gaman gaman :D


og já btw, ég er að fara í klippingu ótrúlegt en satt... reyndar daginn eftir að ég kem austur en það skiptir ekki máli.. klipping er kliping hvenær sem hún verður :D hehe ^^


held að ég láti þetta gott heita að þessu sinni blogga svo næst þegar ég á afmæli ^^


nei nei segi bara svona :)


Adios ppl

Sigurjón Kristinn Björgvinsson

svona á meðan talað er um það :D

29. október 2007 klukkan 15:08

Já kannksi að maður skelli því bara hérna inn líka fyrst Svandís minntist á það í einu kommentinu hérna í blogginu á undan


Varúð, fyrir þá sem hafa ekki húmor fyrir vitleysiskap skulu ekki lesa lengra :)


Sko þetta gerðist í Englandi, á þeim tíma sem ég var þar í sumar... ég og Heiða frænka vorum í London eitthvað að dundast og versla... svo var kominn tími á að fara heim, þreytt í löppunum og komið nóg af London í bili... við drífum okkur í Undergroundið (lestirnar)... (nú byrjar það fyndna)... Við Heiða vorum nánast komin á staðin þar sem lestin okkar fór, þá tökum við eftir því að hún er kominn og er örugglega rétt að fara... Við byrjum að hlaupa og það er eins og Heiða ætli bókstaflega að henda sér inní lestina og kastar einhvernveginn annarri hendinni á undan og btw þá hélt hún á poka í hendinni, og um það leiti sem pokinn er rétt kominn inn í lestina lokast hurðin við bæði fyrir utan og pokinn inni, en Heiða heldur samt í hann ! og togar af öllum lífsins sálarkröftum í pokan og handföngin slitna af pokanum !!.. en sem betur fer opnast hurðin aftur og Heiða stekkur inn... ég vissi ekki enn hvað var að ske þannig að ég var fyrir utan og áttaði mig ekki á því að Heiða var komin inní lestina og ég fyrir utan, þá kallar Heiða eitthvað í mig og þá byrjar hurðin að lokast aftur... og ég fyrir UTAN !!! en Heiðu tekst einhvernveginn að koma hendinni á milli þannig að hún klemmist og er þannig í einhvern tíma og öskar eitthvað "SOMEBODY DO SOMETHING !!!" þá kemur einhver gæji og hjálpar henni að opna hurðina á lestinni og ég kemst inn... allir í kringum okkur ekki allveg sáttir og föttuðu ekki allveg afhverju ég og Heiða vorum að deyja úr hlátri og lestin örugglega svona 5 mín á eftir áætlun :P haha!!


Þetta er basicly það sem gerðis þann afdrifaríka dag, plús smá göngu, bjór og versleríi


ég þakka fyrir mig og ég vona að þið hafið hlegið eitthvað af þessu ! :D

Sigurjón Kristinn Björgvinsson

Jú ég held það

27. október 2007 klukkan 21:06

Vitiði held að það sé kannksi kominn tími á pínulítið blogg.. :)


Hef ekkert nennt að blogga í lengri lengri tíma, en best að gera það fyrst að maður nennir því og hef ekkert að gera í þokkabót :P


Ég ætla að byrja á því að gera eitt voða voða sniðugt...


Ég ætla að óska Heiðu frænku til hamingju með afmælið þann 19. okt síðastliðinn

Og ég ætla líka að óska henni Eyrúni vinkonu minni til hamingju með afmælið sitt þann 25.okt síðastliðinn :) þá er það allavegana afgreitt :) hehe


Svo á Árdís systir bara afmæli á morgun eða 28.okt, úff man svo vel eftir því þegar ég hélt á henni sem ungabarni... þó að það sé langt síðan ég veit... en ég man það samt af einhverjum óútskýranlegum ástæðum :S


Svona fyrst að ég er að tala um afmæli á þriðja borð þá á ég víst afmæli eftir 30 daga held að ég sé að fara með rétt (nenni ekki að telja dagana 100%) úff maður er bara orðinn gamall :S langt kominn á fimmtugsaldurinn

    En já þá eru borðin víst orðin fjögur.


Já ég er náttúrulega ekkert búinn að blogga svo lengi að ég bloggaði ekki einu sinni um það þegar ég fór út til Englands til Svandísar frænku og co.

    Get ekki hugsað um neinn skemmtilegri tíma sem ég hef eytt með familíunni... nema kannksi gömlu góðu stundirnar þegar var spiluð Lauma við eldhúsborðið í Tjarnarlöndum 18 :D

    En já inn góðan veðurdag úti í Englandi ákváðum við að skreppa í Safari dýragarð...sáum Stonehenge btw helvíti töff :S... en djöfull var það gaman í dýragarðinum :D

    Við mættum þarna ég, Heiða frænka, Svandís frænka, Heiða litla og Þór (Heiða litla og Þór eru börn Svandísar) og brunuðum inn voða spennt, vorum búin að skoða fullt af dýrum gíraffa, strúta svona mini kengúrur (veit ekki allveg hvað þær heita) og nefndu öll dýrin... svo þurfti Heiða litla að pissa... við brunuðum til baka á byrjunarstaðinn og hún fékk loksins að pissa eftir langan tíma :P, svo lögðum við af stað aftur, en keyrðum mun hraðar í gegn núna, þar til við komum að öpunum (sáum þá ekki áður en Heiða þurfti að pissa) litlir og krútlegir apar :P sumir þeirra meira að segja hoppuðu uppá bílana... og við allveg... æji mig langar að einhver api komi uppá bílinn okkar... en fljótt urðu blikur á lofti og við sáum apa á bílnum fyrir framan okkur svoleiðis tæta upp einangrun milli hurða og rífa upp einhvern lista... og við urðum fljót að skipta u skoðun... og drifum okkur í gegn svo að við myndum ekki lenda í öpunum... eftir það gáfum við einhverjum dádýrum að éta, þeir átu eitthvað fóður beint úr lófanum á manni... djöfull var það ekki nice :S... allur útí slefi og ógeði :S, en svo kom ógeðslegasti parturinn af dýragarðsferðinni... dun dun dun duuunnnnnn... rándýrin :P hehe... allt í lagi með það, við þurftum að hafa rúðurnar lokaðar allan tíman sem við keyrðum í gegn og skoðuðum ljónin (sáum ljón riðlast smá á ljónynju) svo komu tígrisdýrin og þá var farið að verða svolítið ískyggilega heitt í bílnum, loftræstingin biluð og glampandi sólskin og eitthvað í þokkabót... þannig að við drifum okkur tókum nokkrar myndir en þá var eitt svæði eftir áður en við kæmumst út úr rándýragarðinum, og úlfarnir voru það... við brunuðum eins hratt og mátti fara þar til við sáum einhverja úlfa... stoppuðum tókur örfáar myndir og drifum okkur svo þaðan út, og svo var það fyrsta sem við gerðum þegar við komumst á safe stað var að síga útúr bílnum og drana djúpt inn andan, shit hvað það var nice...  og svo difum við okkur bara heim :)

   Svo skutluðu við Heiða frænka okkur til Lundúna daginn eftir minnir mig, og í eitt skiptið var haldið að við værum kærustupar.. voðalega fyndið :P haha en ekki sögunni meir með það, það var verslað eitthvað þar til maður var orðinn úrvinda af þreytu í löppunum og drifu okkur svo heim, svo var gert eitthvað meira spennandi þann tíma sem ég var úti en þa yrði margra blaðsíðna rigerð ef það yrði allt skrifað hér.. þannig að ég sleppi því bara.. :P


Og snúm okkur að öðru, ég fór til Eyja á þjóðhátíð, með Svenna, Fanney, Ibba og Stebba... djöfull var gaman þar... það má meðal annars nefna það að ég var fyrstur til að drepast á þjóðhátíð 2007 og var settur beint í dauðagáminn, klukkan 11 takk fyrir pent ! svo að ég missti af brennunni og læti... en megin ástæðan fyrir því að ég drapst svona snemma er sú að ég ætlaði að drekka hraðar svo að ég næði fólkinu í kringum mig í fyll-leikastigi, svo þegar ég var orðinn vel í því þá datt honum Svenna það snjallræði í hug að láta mig choka Captain Morgan og Hot & Sweet í tvöföldu bear-bongi sem við vorum með... og það gerði útslagið... held að ég hafi drepist 15-30 mín eftir það, en svo þegar fólkið ætlaði að koma og ná í mig um svona 3 leitið þá var ég bara ekkert í gámnum :S bara horfinn... og ekki einu sinni spurja hvað ég gerði eða eitthvað... ég var í blackouti svo að ég veit ekkert, vaknaði bara í tjaldinu míni daginn eftir og það lá stelpa við hliðina á mér... en það gerðist ekkert því þetta var vinkona hennar Fanneyjar sem hún leifði að gista, svo ætlaði ég að standa upp

 og steig í hægri löppina þá hrundi ég niður af sársauka því einhvernveginn hef ég náð að togna og dröslast í tjaldið í mínu blackouti og gat ekkert stigið í löppina, svo að farið var með mig í sjúkraskýlið þar sem bundið var eitthvað utan um bólguna og eitthvað þannig að ég gat stigið eitthvað í löppina en það var samt sáralítið.. og ekki skánaði það svo þegar ég þurfti að fara að labba upp brekkuna !! díses hvað það var vont !, en svo gerðist eiginlega ekkert meira fyrir mig þarna nema hvað að maður var grautmyglaður og ónýtur þegar maður var að fara frá eyjum í Herjólfi, djöfull var það ógeðslegt.. og ælulyktin gjörsamlega yfirngæfði alla aðra lykt sem mögulega hefði verið hægt að finna... en skemmtileg ferð til eyja var þetta nú samt svo sáttur er ég :D...


Mikið meira hefur nú ekki skeð síðan ég bloggaði síðast, nema hvað að ég er búinn að flytja 2 sinnum... einu sinni frá Ibba og til hans Sigga vinar míns, og var þar í einhvern einn og hálfan mánuð held ég og fluttist svo uppí Langagerði 58 nálægt Skeifunni og Grensás og því öllu :)... þar átti ég heima hjá frænku minni í 2-3 vikur þar til að hún flutti í sína eigin íbúð... þá varð ég einn í þessari íbúð se er ca.45 fm með Stofu, herbergi, sturtu/þvottahúsi, baðherbergi og eldhúsi... samt allt í sitthvoru rýminu... og ég er ekki að leigja þetta nema á 30.000 á mánuði... lúxus præs og allt í gúddí :P hehe...


Og nýjustu fréttir... ég ætla að taka mér pásu í skólanum eina önn og fara austur og vinna, þannig að þeir sem vita það ekki þá er ég að koma heim um jólin og ég fer ekkert þaðan fyrr en næsta haust :)...


látum þetta gott heita í bili... og vonum að það líði ekki jafn langt á milli blogga eins og síðast :P


heil og sæl... en samt aðalega sæl

Sigurjón Kristinn Björgvinsson

Eitt það fyndnasta sem ég hef séð !!!

20. apríl 2007 klukkan 20:44

Ég var bara að vafra eitthvað á netinu áðan og ég rakst líka á þetta ÓGEÐSLEGA fyndna video... ég mæli með því að þið sem eruð á almennings stöðum s.s. kaffihúsum, skólum eða annað slíkt horfi ekki á það fyrr en heim er komið :P...


Ef þið eruð ein inní herbergi eða eitthvað mæli ég með því að þið læsið að ykkur því að fólkið á heimilinu á eftir að undrast hversu hátt þið hlæið...


Það er algjört must að hafa hljóð og ekki er það í verri kantinum að horfa á þetta margir saman, mun skemmtilegra :D


oki... þeir sem hafa einhverntíman spilað Super Mario Bros þá eigiði eftir að fíla þetta myndband... ég og Ibbi grenjuðum svoleiðis úr hlátri hérna yfir þessu


Hérna er þetta sprenglhlæilega video :D ENJOY !!

Sigurjón Kristinn Björgvinsson

Sumardagurinn fyrsti :D

18. apríl 2007 klukkan 23:41

Eins og allir hafa tekið eftir þá er Sumardagurinn fyrsti á morgun...

    Ætli það verði ekki skíta veður eins og venjulega en maður fær "frí" á morgun og föstudaginn, en þarf að vinna.. helvíti mikið stuð :P


En góður skóladagur í dag... það var frí í hádeginu og frí í restina af skólanum fyrir mig allavegana...það var bara byrjað að grilla og svona fyrir utan skólan ^^ geðveikt sweet

Allveg 2 !! pylsur á mann :P... og 2 svalar :P hehe... en strax eftir það var ég manaður í að taka þátt í kappáti þar sem átti að borða 2 matarkex... ekkert mál með það nema að þau eru svo helvíti þurr ef maður má ekki drekka neitt með... svo átti að taka bita af kókosbollu og drekka kók strax á eftir og svo mátti bara éta þetta eins og maður vildi eftir það :P... lennti í 4 sæti eða eitthvað... helvíti magnað... en ekki nóg með það þá var maður strax sendur í LIMBÓ !!! með fullan maga af kókosbollu og kóki og magan fullan af gosi eftir að kókosbollan og kókið blönduðust saman... það var ekki þæginlegt !!

    Eins og ég hef nú ekki gott bak í það þá lét ég mig nú samt hafa það og reyna eins og ég gæti... :P... náði nú samt vel niður fyrir meter, sem er vel fínt fyrir hálfbakveikan mann :D...


Já svo er bara ca. vika eftir af skólanum áður en prófin byrja, shit hvað ég verð að standa mig vel núna...  læra læra læra læra... hata þetta orð en maður verður víst að gera það


en þetta var svona oggu ponku pínu ponsu smáblogg um það sem gerðist bara í dag.. :P hehe... voðalega skemmtilegur dagur...


þar til næst ;)

Sigurjón Kristinn Björgvinsson

Sælt veri fólkið... spurningin um að blogga :P

14. apríl 2007 klukkan 23:28

Jæja ég ætla mér að gera svolítið sem ég bjóst aldrei við því að gera, en vonaðist alltaf til þess :P


Ég ætla að semja texta, ekki nóg með það að þá ætla ég að reyna að redda mér allri mögulegri hjálp til að gera lag við textann, lagið á að vera svona rokk einhvernvegin, en ekki þannig að maður þurfi að fara að reyna eitthvað á röddina geðveikt mikið :P ég er ekki allveg með röddina í það hehe... en svo ætla ég mér að fá allan mögulegan liðstyrk sem er tilbúinn að hjálpa mér að koma laginu í söngvakeppni frammhaldsskólana, spila undir, syngja eða eitthvað, jafnvel að maður syngi það sjálfur :P hehe... en öll hjálp væri vel þegin og ef þig getið bent mér á einhvern sem gæti verið tilbúin/n að hjálpa mér með það væri geðveikt... ég hef allveg ár þannig að ég hf slatta tíma til að gera þetta þannig að það er eins gott að maður geri þetta vel ^^


En já um eitthvað annað...

Djöfull er ég að meika það í þessari byggingarvinnu :P gæti ekki hugsað mér erfiðaraskemmtilegra starf í augnablikinu, svo er það líka ákveðið, ég verð fyrir sunnan í allt sumar að vinna... veit ekkert hvort að ég komi eitthvað austur en það verður þá bara að koma í ljós :)...


    Efasemdir um utanlandsferðina eru farnar að koma í ljós þó að mig langi það geðveikt mikið... en ég efast að ég eigi efni á því, ég kann ekki að eiga peninga lengur !!! eins og ég átti nú alltaf pening :S


    Svo er bara stutt eftir af skólanum... helvíti gaman barasta... fá "sumarfrí" og svona... hehe gaman gaman... svo fyrstu helgina í Ágúst er bara road trip með Ibba til EYJA !!! hahaha :D það verður gaman... og eintómp fylleríííííí !!! :D:D:D:D:D:D shit mig hlaggar til bara nú þegar :P


en þar til næst (hvenær sem það verður)

Sigurjón Kristinn Björgvinsson

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Besta í Augnablikinu

Könnun

Það er týnt ?